Halló kæru hugarar :)

Ég vildi bara aðeins nota tækifærið og auglýsa frábæra tónleika sem verða í Fífunni Kópavogi 12 mars næstkomandi. Sjaldan í tónlistarsögu Íslands hefur verið ráðist í jafn stórt verkefni og nú. En það verða haldnir Queen tónleikar í uppsetningu kórs Fjölbrautaskóla Suðurlands (FSu), hljómsveitarinnar DBS með Eiríki Haukssyni, Magna Rockstar og Heru Björk.

Þetta verða geggjaðir tónleikar og ég hvet ykkur öll til að mæta! :D

Miðasala er á fullu á www.midi.is og midaverð er aðeins 3900 sem er náttúrulega ekki neitt fyrir eins stóra tónleika og þessa :)

Allir á Queen! :D
An eye for an eye makes the whole world blind