Ég var að horfa á SkifanTv og þar kom lag sem ég finn ekki!
Þetta var bara ein stelpa og hún sagði mjög oft “All i need is to feel you” eða eitthvað svoleiðis og svo náði ég “no matter where you go it's deep in your soul”, það var seinasta setningin minnir mig.
Ég er búin að vera að leita að þessu á fullu og googla þetta en mér tekst ekki að finna þetta.

Í myndbandinu var hún hjá sjónum, svo lá hún með einhverjum gaur, síðan var eitthvað verulega litríkt fyrir aftan hana þegar hún stóð á bryggjuni.

Einhverjar hugmyndir?