Góðan daginn kæru tónlistarsjéní.

Á næstu dögum verða haldnir styrktartónleikar fyrir þá sem minnst mega sín. Spilað verður í þeim grunnskólum sem hafa áhuga á að taka þátt í verkefninu. Fyrstu tónleikarnir verða þann fimmta mars í Seljaskóla og dettur þetta svo í gang eftir það. Ef þið og þín hljómsveit hafið áhuga á að koma fram hafið samband við mig í gegnum tölvupóst.

dorian.declour@gmail.com

Það sem þarf að koma fram er nafn hljómsveitar, nafn og símanúmer tengiliðar ásamt tónlistarstefnu eða hvaða hljómsveitum þið líkist. Endilega hafið samband sem fyrst.Þá aukast líkur ykkur til muna.