Þetta á kannski ekki heima hér og kannski heldur seint að setja þetta inn. Ástæða þess að ég set þetta inn hér er vegna þess að ég hef séð mikið af notendum og umræðum um þessa tónleika á /tónlist.

En það sem mig vantar að vita er hvort einhver hafi fundið brúnt hulstur utan RayBan gleraugun mín og/eða brúnt fléttað leðurarmband (karlmanns).

Það gæti verið að ég hafi týnt armbandinu niður í bæ eftir tónleikana og þá gæti það hafa verið á Ellefunni, Celtic, Sólon, Hressó eða QBar (það var fluga í rassgatinu á mér þetta kvöldið)…

Rayban-dótið fékk ég í gjöf frá afa mínum og armbandið er mér mjög sérstakt…

Með fyrirfam þökk,
bjagni - sem saknar þessara hluta ótrúlega mikið…