Vaaaaaá hreint út sagt ótrúlegt! Mercedes club hefur tekist að setja Íslandsmet (ef ekki heimsmet) í hallærisleika með þessu ofur fáránlega lagi og einhverju video'i sem hlýtur að vera grín útgáfa af öðru video'i eftir lúðann hann Basshunter. Allavega allt sem Cerez4 segir í laginu er bara útí hróa :)
Atriðið í bílnum og þetta… get bara ekki talað um þetta því ég er með svo mikinn aulahroll :D

En já drullufyndið dæmi hjá þeim bara og tekst þeim bara ágætlega að skila þessu djók dæmi af sér með alveg ýktasta myndbandi ever og tónlist sem hefði getað verið kippt beint úúr latabæ! Tek bara af ofan fyrir þeim því ég hef mjög gaman af þessu og þau greinilega líka…Gangi ykkur bara vel ;) (ps þetta er engin kaldhæðni í mér)