Hver man ekki eftir fyrsta Strumpadisknum?

Lög eins og Macarena, No Limit, Mr. Boombastik, A Beautiful Life og fleiri smellir fengu ljúfa meðferð þeirra strumpa.


Það sem ég er að fiska eftir er hvort einhver lumi á lagalistanum af þessum disk og þá meina ég upprunalegu lögin.

Lög eins og Söngstrumpur, Draumastrumpur Klifurstrumpu eru lög sem ég vildi eignast í upprunalegri útgáfu.


Það sem ég er kominn með er:


Macarena er frekar basic
Strumpareivið = No Limit með 2 Unlimited
Strumpapartí = A Beautiful Life með Ace of Base
Handverksstrumpur = Mr. Boombastik með Shaggy.

Þið hljótið að eiga þennan disk einhversstaðar heima hjá ykkur, minn er bilaður og hulstrið er týnt :(