Hvað heitir þetta lag:

Á íslensku má alltaf finna svar
og orða þetta og hitt sem er og var
og hún á orð sem geyma gleði og sorg,
um gamalt líf og nýtt í sveit og borg.

Á vörum okkar verður tungan þjál
þar vex og grær og dafnar okkar mál.
Að gæta hennar gildir hér og nú
það gerir enginn nema ég og þú.

—-
Þetta er allt textabrotið, er búinn að vera að leita og leita að þessu inná tónlist.is en ég bara finn þetta ekki þar. heitir þetta ekki einhverju fáránlegu nafni?
Cinemeccanica