Ég var í Hress um daginn og sá lag/myndband í sjónvarpinu.
Ég heyrði ekkert lagið þar sem ég var ekki með heyratól til að stinga í tækið og það stóð ekki í endanum hvaða lag þetta var svo ég þarfnast hjálpar ykkar. Mig langar svolítið að vita hvaða lag þetta er, myndbandið var svo flott.

Það var sköllótur maður, sirka 27-32 ára. Hvítur bakrunnur, hann var að spila á svart píanó. Komu alltaf fólk í myndbandinu og oft stóð eitthvað, t.d. Believe, be strong, og álíka hvatningarorð. Frekar töff.

Það var hljómsveit þarna, sást ekkert mikið í hana þó.

Mjög líklegt að þetta hafi verið svona rokkaðri Jack Johnson týpa. (Veit ekkert, þar sem ég heyrði ekkert) Leit bara út þannig.

Veit ekki um fleira sem ég get sagt. :/
Miles: 3969.64 | Kilometers: 6388.33