Sæl öll,

Ég heyrði lag í gær sem ég verð að vita hvað heitir, hérna er það sem ég veit um það.

*Þetta lag var spilað á Pravda í gær að giska um eitt leytið.
*Það sem einkennir þetta lag er mjög harður en ekki hraður bassa/trommutaktur og svo syngur einhver gaur.
*Gaurinn er ekki að rappa og er með svona frekar pikulega rödd miðað við lagi sjálft. Gæti verið einhver poppsöngvari.
*Maður hefur oft heyrt þetta lag spilað en ég held að þetta sé ekki eitt af allra heitustu lögunum akkúrat í dag.
*Myndi giska á að lagið væri ca. árs gamalt.

Ég veit að þetta eru mjög litlar upplýsingar en ef einhver telur sig vita hvaða lag ég er að tala um þá má hann endilega láta vita. Kannski rétt að hamra á því að þetta lag einkennist soldið af þessum harða takti.