Mánudaginn 30. júlí halda hljómsveitirnar Kalk og Url tónleika á Gauki á stöng. Kalk ætlar að gæla við eyru viðstaddra með íðilfögrum rafsveiflum, af nýútkomnum geisladiski sínum, Tímaspursmáli.

Url mun leika handunnið dægurrokk, en nokkuð er um liðið síðan sveitin spilaði opinberlega síðast. Meðlimir Url hafa verið önnum kafnir í hljóðveri að vinna að sínum fyrsta geisladiski sem væntanlegur er í haust.

Frekari upplýsingar er að finna á http://www.url.is
og http://www.kalk.is