Nú finnst mér vera kominn tími hjá mér að uppfæra trommusettið mitt
Ég hef haft augastað á Ludwig græju svoldið lengi og er að spá í að skella mér á eitt stk svona: http://www.music123.com/Ludwig-LC325E-Accent-CS-Custom-Elite-5-Piece-Set-i143223.music

Ég er tiltölulega ný í bransanum svo þekking mín er frekar takmörkuð … og leita ég til ykkar með ráðleggingar.

Ég er í hljómsveit og við höfum spilað þónokkur gigg.. og gengur vel, fæ að heyra að ég sé ágæt en auðvitað á ég helling eftir ólært!!

Ég hef ekki farið í skóla og lært að tromma en hef mikinn áhuga á því - getiði mælt með einhverju í þeim efnunum líka?

kær kveðja,
Verðandi Bonham Íslendinga :) :) ;)