Um daginn var mér sýnd máluð/teiknuð mynd af borgarlífi í stórborg, það var mjög mikið að gerast á myndinni og það voru margar einkennilegar myndir. Þegar betur var að gáð þá sá ég að hver einasti hlutur á myndinni var táknrænn fyrir einhverja hljómsveit og stórt útgáfufyrirtæki hafði látið gera þessa mynd og sett hana á netið(held ég) og þetta hafði verið getraun. Þetta var óendanlega flott mynd og mig langar að skoða hana nánar. Vill svo skemmtilega til að einhver veit um hvað ég er að tala og gæti bent mér á hvar ég get nálgast þessa mynd?

Með fyrirframþökk
almaogm