Nýlega keypti ég mér safndisk með Jimi Hendrix og það verður að segjast að Hendrix var snillingur. Plata þessi er tvöföld og nefnist experience Jimi Hendrix. Hún inniheldur öll helstu lög brúna snillingsins og ber þar helst að nefna lög eins og All along the watchtower, Purple haze, Hey Joe og Voodoo child. Þó svo að ég nefni aðeins þessi fjögur lög er ég ekki að segja að hin lögin séu síðri, þvert á móti eru þau öll frábær og sum jafnvel mun betri.
Jimi Hendrix er og verður alltaf snillingur og ég myndi mæla hverjum sem er með að kaupa hann.