Þetta voru náttúrulega hreint mergjaðir tónleikar !! geggjuð stemming og allir voru í stuði :D Upphitunar hljómsveitin Jeff who? voru miklu betri heldur enn að ég hélt að þeir yrðu og var það bara stuð. Eini gallinn við tónleikana var biðin á milli Jeff who? og Franz Ferdinand !! það var einhver lame dj sem var með lög sem voru öll eins og það í 30 min !! ég hélt að ég ætlaði að deyja !! en það reddaðist um leið og Franz stigu á svið !! :D Einnig voru nýju lögin bara góð og ekkert annað !! og hin klikkuðu ekki :D:D