Bestu lögin segirðu, hér er fjögur sem ég get ekki gert upp á milli í augnablikinu
1. - 4. Tchaikovsky; Sjötta sinfónían eða “Pathetic”. Besta verk hans að mínu mati, ótrúlega tilfinningaþrungið og voldugt verk en samt svo einlægt.
1. - 4. Francis Poulenc; Sextet fyrir píanó, óbó, horn, klarinett, fagott og flautu. Hátindur melódíunnar.
1.-4. Franz Liszt; Annar píanókonsert. Djöfuleg snilld.
1. - 4. Silencer; Sterilie Nails and Thunderbowels. Kannski ekki merkileg tónsmíð en það sem er af henni er nokkuð gott og passar hundrað prósent inn í lagið. Það besta er hins vegar heildarintak lagsins og með góðum söngvara kemst þetta á topp fjögur sem eru þó öll jafn góð listann minn.