Sælir hugarar.
Mér finnst mjög gaman að syngja, og ég syng svo sem alveg ágætlega, ekkert geðveikt vel en samt alls ekki hræðilega. Mér hefur til dæmis alltaf gengið vel í Singstar hingað til, þó að það sé örugglega ekkert að marka það.
En anyway, mig langar geðveikt að taka þátt í söngvakeppni skólans míns sem verður haldin í vor, bara að gamni og bæta sjálfstraustið aðeins. Það fer frekar lítið fyrir mér í þessum skóla og ég vil fá tækifæri til að breyta því.

En málið er að ég er alls ekki viss um hvort ég þori því að syngja fyrir framan fullt af fólki, ég er svo hrædd um að þá myndi ég bara frjósa og gera mig að fífli.

Hvað finnst ykkur að ég ætti að gera?
kveðja

friend
Ég finn til, þess vegna er ég