Góðan dag

Ég og félagar mínir erum að fara að gefa út hljómplötu og verðum við líklega að gefa hana út sjálfir. Var að spá í hvort það væru einhverjir sem gætu gefið okkur upplýsingar hvað þarf til að þetta geti orðið að veruleika.

Hvað við þurfum að gera í sambandi við VSK, kennitölu, dreifingu os.frv. Þurfum við að stofna sér fyrirtæki eða getum við þetta sem verktakar.

Það væri gaman að fá að heyra frá einhverjum sem hefur reynslu í þessum málum.