Nú er svo komið að söngvarinn okkar í Innovation er að flytja til útlanda (auðvitað út af kvennmanni:) og vantar okkur einhvern sem getur fillt upp í skarðið. Við erum að leita að einhverjum sem getur virkilega sungið, sé ekki með sviðsskrekk og helst þarf hann að kunna á gítar og geta komið með ferskar lagahugmyndir.

Við erum bæði að spila frumsamið(og getið þið nálgast upptökur frá músiktilraunum á síðunni okkar www.innovation-band.tk) og cover lög eins og gengur og gerist. Við ætlum að reyna að spila eins mikið og hægt er og þar af leiðandi bæði á tónleikum og böllum.


Við erum 17 og 20 ára með æfingarhúsnæði (í bili) í Kópavogi þar sem er frábært hljóðkerfi með öllu ásamt fínasta upptöku “stúdíói”.

Hafið samband við Valla í síma 6948091 hann er vinnandi maður svo ef hann svarar ekki reynið bara aftur.
Getið einnig sent okkur email á steini_kaboom@hotmail.com