Já það er satt, Kraftwerk eru að koma og ætla að spila 5 Maí á krikanum í hafnarfirði. Loksins,þetta er eitthvað sem maður er búin að bíða eftir í mörg ár,ég fékk að vísu að sjá þá á Hróaskeldu,en maður fær bara aldrei nóg. En ég vona bara að sem flestir sem hafa áhuga á tónlist láti sjá sig,enda ekki á hverjum segi sem að svona frumkvöðlar í tónlist láta sjá sig hér á klakanum okkar. Þeir erum á fimmtugsaldri en hafa samt engu gleymt og hafa alltaf haldið sínu,sem er frábært. Svo endilega kk og kvk (ég hef heyrt að það séu ekki margar kvk sem fíla kraftwerk og er ég ekki alveg sátt við það og vil ég að við kvk fjölmennum í krikan og sýnum kk að við hlustum líka á góða tónlist….)