Ég hef hérna verið að skoða nýlegt yfirlit á tónleikum sem hafa verið hér á landi nýverið.

Og þar hafa birst hinir skemmtilegu Foo Fighters og hinu góðkunnu Scooter ( þó “allir” hati þá ) en mér finst það svoldið ömurlegt að alldrei hefur nein Gothic eða Black Metal hljómsveit komið hingað til landsins og haldið tónleika í höllinni. Mér finst það hrein og bein synd að engin skuli hafa fengið gothic eða black metal hljómsveit hingað til lands því það eru mjög margir sem hlusta á svona tónlist. En þeir þurfa því miður að fara til útlanda til að geta fengið að heyra í þeim á tónleikum.

Þannig að hvernig væri að fá loksins einhverja gothic eða black metal hljómsveit loksins til að spila í höllinni ???