Ég kveikti á sjónvarpinu áðan í von um að það væri eikkað skemmtilegt.
Jæja strax þegar það kviknaði á sjónvarpinu þá sá ég bara Birgittu Haukdal og Vignir úr Írafár í Ísland í dag, eða hvað svo sem það heitir.

Horfði ég í smá stund og heyrði Birgittu svo segja hörmulegar fréttir!

BIRGITTA OG HANNI ERU HÆTT SAMAN!!!!

Þau hættu saman einhvern tíman í sumar og höfðu haldið þessu leyndu en það hefur einhvern vegin komist upp um þau þannig Birgitta játaði þetta áðan.

Samt er búið að vera að segja að Birgitta og Hanni væru trúlofuð en annaðhvort var það slúður eða þau bara hættu saman.

En Birgitta sagði okkur líka að Írafár myndi ekki hætta og þetta myndi bara ganga eins og áður, Hanni og hún væru ennþá góðir vinir og ekkert hafði breyst fyrir utan að þau hættu saman.

Jæja, hvað finnst ykkur um þetta góðu lesendur?


Kv. Svandís