Góðan dag gott fólk,
mig langaði endilega að kynnast einhverjum skapandi tónlistarmönnum sem hefðu áhuga á að búa til kreatíva tónlist án alls væls og leiðinda og attitjúds. Bara glöð og skemmtileg tónlist sans hægðatregða.
Ég er persónulega innblásinn af Stereolab, Komeda, Ray Wonder, Will Oldham, Chavez, Royksopp, Gomez, Cardigans ofl. ofl.
Sérstaklega vantar mig skemmtilega og hugmyndaríka trommara og bassaleikara til að vinna með, en öll önnur hljóðfæri eru guðvelkomin.
Hingað til hefur sköpun mín verið einangruð við kassagítargutl vegna aðstöðuleysis, en breytingar standa til…
Endilega hafið samband við mig í tölvupósti: muzak@simnet.is ef einhver hefur áhuga.

Bestu Kveðjur,
Herra Muzak