Ég fékk gjafabréf í skífunni í jólagjöf. Ég keypti mér tvo diska sem saman kostuðu 1200 kall. Ótrúlegt en satt. Þetta voru diskar sem ekki er oft minnst á, Tsjajkovskíj, þrír ballettar, og Flight of the Bumblebee, ýmiskonar vorlög. Allt klassískt auðvitað. Nú mér fannst ég hafa gert góð kaup, en þegar ég fór að hlusta almennilega komst ég að því að Tsjajkovskíj var meiri snillingur en ég hélt. Svanavatnið er bara hrein snilld og það er ekkert sem kemst í hálfkvisti við hina stórkostlegu valsa í Hnotubrjótinum. Ég hafði ekki hugmynd um að þetta væru svona góðir ballettar. Núna er ég eiginlega hætt að hlusta á fm 957 og hlusta bara á Tsjajkovskíj þegar ég vil komast í stuð. Það er ekki vakin mikil athygli á þessari tónlist og mér finnst það leiðinlegt. Diskarnir eru hræódýrir þrátt fyrir mikið magn af tónlist og þess vegna ráðlegg ég öllum að drífa sig út í búð og fjárfesta í a.m.k. einum ballett eftir Tsjajkovskíj (Svanavatnið er algjört must). Gott fyrir sálina og líkamann. Kosta 799 kall í skífunni.