Unglist - Neðanjarðarrokk Þessa dagana stendur yfir listahátíð ungs fólks sem ber heitið Unglist. Unglist er starfrækt í tengslum við Hitt Húsið. Dagskráin er fjölbreytt að vanda þ.á.m. nokkur tónlistarkvöld.

Á föstudaginn, 25. október, verða tónleikar er bera heitið Neðanjarðarrokk og hefjast þeir kl. 19:00.

Fram koma hljómsveitirnar: Lack Of Trust, Citizen Joe, Reaper, Myrk, I Adapt, Múspell og Dys.

Aldurstakmarkið er 16 ár.

Unglist lýkur svo á laugardaginn, 26. október, með tónleikum í Tjarnarbíói er bera heitið Hipp hopp helvíti.

Á þeim hljómleikum koma fram hljómsveitirnar Mc Steinbýtur, Afkvæmi Guðanna, Bæjarins bestu, MC Mezzias og Pax. Gestahljómsveit er Króm frá Eskifirði. Aldurstakmark 16 ár.