Jæja, þá er platan komin út hjá drengjunum og allt gott og blessað með það.

Hins vegar er eitt sem mér finnst frekar skrýtið. Ég tók strax eftir nafninu Mr. Jinx þegar þeir gáfu út plötuna með egginu (sú hét ábyggilega bara Quarashi). Mér varð að sjálfsögðu hugsað til kattarins frá Hannah Barbera sem heitir þessu ágæta nafni, sá hefur atvinnu af að eltast við músina Dixie.

En síðan sat Sölvi í sjónvarpsþætti um daginn og sagði að eitthvað lítið kvikindi framan á plötunni þeirra nýju hefði verið skýrt mr. Jinx og hann hefði stolið þessu nafni frá vini sínum, á sínum tíma.

Það væri nú helvíti fyndið ef Hannah Barbera fyrirtækið færi eitthvað að rífa kjaft yfir þessu…….gæti jafnvel orðið hin ágætasta markaðssetning.