Quarashi Fyrir nokkru sá ég nýja myndband Quarashi við lagið Stick'em up. Mér finnst þetta myndband með þeim flottustu sem ég hef séð þó að margir segji að það sé mikið tekið úr myndinni Snatch sem er að vissulega rétt. Samt þá er þetta myndband tær snilld enda er lagið sjálft líka ekkert smá gott og voru smá endurbætur á því. Quarashi er mín uppáhalds hljómsveit og þeir voru algjörlega hápunktur kvöldsins á Samfésaballinu seinasta föstudag (8. mars). Núna bíð ég eftir næstu plötu bandins sem kemur víst í lok þessa mánaðar eða byrjun næsta út í Bandaríkjunum en aðeins seinna hér á landi. Lögin þeirra eru bara geðveik blanda af hörðu rappi með ekkert smá flottri rokkíblöndu. Snilldarband!!

Kv. The Snowman