Skemmtikvöld múm á Organ 19. desember

Hljómsveitin múm fagnar heimkomu sinni og vel heppnuðri tónleikaferð á Organ miðvikudagskvöldið 19. desember kl. 21:00.

Fram koma: múm (DJ set), Mr. Silla & Mongoose og fleiri óvæntir gestir
Hvað kostar: Ekki krónu

Skríplagos (e.þ.s. léttar veitingar :-)) verður í boði fyrir gesti á meðan birgðir endast.


Í september sendi sveitin frá sér fjórðu hljómplötu sína ‘Go Go Smear the Poison Ivy’.

Platan var tekin upp víðs vegar um landið og má þá nefna sérstaklega tónlistarskólann á Ísafirði sem Örvar og Gunnar lögðu undir sig sumarið 2006. Önnur skólabygging kom einnig við sögu, en allar trommur og gott betur, voru teknar upp í gömlum skóla á eynni Nötö sem liggur á milli Svíþjóðar og Finnlands.

Stofnmeðlimir sveitarinnar Örvar Þóreyjarson Smárason og Gunnar Örn Tynes sitja enn í stjórnklefanum, en á þessari plötu koma þar að fjölmargir hjálparkokkar, bæði nýjir og gamlir. Finnska trommuundrið Samuli Kosminen ber bumbur og sér um slagverksleik eins og á síðustu plötum og Eiríkur Orri Ólafsson bregður sér í allra kvikinda líki, leikur á trompet, pianó og útsetur strengi og blásturshljóðfæri. Ólöf Arnalds leikur á víólu og gítar sem fyrr og syngur, en í hópinn bætast þær Hildur Guðnadóttir og Sigurlaug Gísladóttir, eða Mr.Silla, en Hildur hefur þó unnið heilmikið með múm áður.

Kápuna hannaði Ingibjörg Birgisdóttir og hefur myndband hennar við fyrsta smáskífulagið vakið gríðarlega athygli og þá sérstaklega á Youtube, þar sem myndbandið hefur fengið hátt í 500.000 áhorfendur og var um tímabil 35. vinsælasta myndband á síðunni.

Múm hyggur ekki á tónleika á Íslandi fyrr en eftir tónleikaferð sína til Japan snemma á næsta ári, þar sem hún spilar m.a. á þremur tónleikum með Skakkamanage. Í sumar spilaði sveitin á sérvöldum tónlistarhátíðum víða um Evrópu, til að mynda Primavera í Barcelona, La Mar de Musicas í Murcia, Villette Sonique í París, Sync festival Aþenu, Afisha í Moskvu og nú síðast á hálfgerðum leynitónleikum á Museum of Garden History í London, þar sem gestir voru dregnir úr hatti eða hálfgerðu net-lotteríi.


Sýnishorn úr umsögnum og stjörnugjafir:

* * * * - Fréttablaðið

* * * * - Morgunblaðið

* * * * - Monitor

'Go go smear the poison ivy is a delight…… Sublime' 8/10 NME

'A maverick classic" DJ Magazine

'Truly bonkers and surely with more than a little smattering of genius' 4/5 Thisisfakediy

'Whoever said there are eight wonders of the world was wrong: Múm prove they are everywhere with their rapturous fifth album.' 4.5/5 subba-cultcha.com

'Sounding as if Radiohead's track Kid A had it been composed by, well, a kid, ‘They Made Frogs Smoke….’ is endearingly ramshackle in all the right ways.' - Guardian

'Yes, the Icelanders' new single is as arresting as its title.' - The Times – Hottest Downloads