Hæ hó og dillidó………

Ég vildi bara segja ykkur frá frábærum útgáfutónleikum Smaladrengjanna á Kaffi Reykjavík á föstudagskvöldið var. Alveg þvílíkt skemmtilegir strákar og lagavali með eindæmum fjölbreytt, að ógleymdum Eurovision og Britney Spears syrpunum. Ég mæli líka með disknum, hann er skemmtileg tilbreyting í sibyljuna. Ekkert helv.. Buttercup, Móti Sól, Skímó kjaftæði hérna. Meðal manna sem syngja með strákunum eru jafnólíkir menn og Pálmi Matthíasson prestur og Árni Johnsen (Starfsheiti óljóst). Tékkið á disknum. Hann er góður.

Kv.

Mazoo