Föstudaginn 26.maí verður blásið til mikillar veislu á Nasa í Reykjavík. Þar mun snillingurinn Jon Spencer, úr Jon Spencer Blues Explosion og Pussy Galore, koma fram með rokkabillýbandi sínu Heavy Trash. Með honum í hljómsveitinni er Matt Verta Ray sem var áður í Madder Rose og Speedball Baby. Á síðasta ári sendi Heavy Trash frá sér samnefnda plötu sem hefur hlotið mikið lof gagnrýnenda fyrir óð til rokksins í sinni einföldustu mynd. Jon Spencer er frægur fyrir ótrúlega sviðsframkomu og gleyma þeir 1000 íslendingar sem sáu hann í kjallara Rásar 2 fyrir nokkrum árum með Blues Explosion því ekki svo glatt. Heavy Trash er á leið yfir hafið til að leika á nokkrum tónleikum í Evrópu og spila m.a. á Loppen í Kaupmannahöfn daginn eftir að þeir hefja tónleikaferðina hér á landi. Heavy Trash breytist dúói í kvartett þegar þeir spila á tónleikum og munu þeir Yebo (Junior Senior) leika á trommur og Kim (Powersolo) á kontrabassa. Þegar þeir John og Matt hittust í New York fyrir nokkrum árum ákváðu þeir að leita til grunnsins í rokkinu og með það að leiðarljósi stofnuðu þeir Heavy Trash en þess má geta að þegar Matt var ungur maður að alast upp í Kanada hélt hann því statt og stöðugt fram við vini sína að Johnny Cash væri svalari en Kiss.



Ærslabelgirnir í hljómsveitinni Powersolo munu einnig koma fram á tónleikunum en tónlist þeirra hefur verið uppnefnd “asnapönk!” og blaðamaður Austin 360 skrifaði eftir tónleika þeirra á South By Soutwest hátíðinni “probably the best country-porn act at SxSw”. Powersolo spilaði á síðustu Airwaves hátíð og vöktu mikla lukku er þeir framreiddu sinn magnaða kokteil fyrir fullu húsi á Nasa. Sveitin er um þessar mundir að gefa út sína þriðju plötu “Egg” en fyrsta smáskífulagið af henni, Knucklehead, var smáskífa vikunnar hjá danska ríkisútvarpinu.



Þriðja sveitin sem kemur fram þetta kvöld er hljómsveitin The Tremelo Beer Gut en þessar þrjár sveitir eru allar á mála hjá fremsta indí merki Dana, Crunchy Frog. Tremelo Beer Gut var stofnuð af Yebo og Sune Wagner (Raveonettes) eftir að þeir höfðu hlustað á gamlar surf plötur á hljómleikaferð með bandinu Psyched Up Janis sem þeir báðir voru í. Tremelo Beer Gut leikur að eigin sögn “surf & western” og hafa hitað upp fyrir Jon Spencer Blues Explosion, auk þess sem þeir voru opnunarband Hróarskelduhátíðarinnar árið 2000 þegar þeir léku á stóra sviðinu fyrir 30.000 manns.



Miðasala verður tilkynnt síðar og það skýrist á allra næstu dögum hvaða íslenska hljómsveit mun koma fram sem sérstakir gestir.



Miðaverð er aðeins 1800 kr. + miðagjald



www.crunchy.dk
www.heavytrash.net
www.powersolo.dk
www.thetremelobeergut.dk
Kær Kveðja