Judas Priest er snilldrarhljómsveit sem stofnuð var 1971 en gáfu út sína fyrstu plötu 1974
Gömlu mennirnir í Judas Priest eru að nálgast sextugt, en þeir gefa þeim yngri lítið eftir og tónlistin verður þyngri með hverri plötu. Hér er brot af sögu þessarar sveitar sem er búin að starfa svo lengi og hefur haft áhrif á svo margar aðrar hljómsveitir. Hljómsveitin Judas Priest var stofnuð í Birmingham árið 1969, af söngvaranum Alan Atkins. Nafnið var fengið úr lagi Bob Dylan The Ballad of Frankie Lee and Judas Priest. Atkins var í samstarfi við hina og þessa þar til hann kynntist Ian Hill bassaleikara og K.K. Dowing gítarleikara Hill og Downing spiluðu þá saman í bandi sem hét Freight. Þeir ákváðu að slaufa því nafni og teka upp Judas Priest í staðinn. Þeir réðu trommara eftir trommara en gekk ekki að halda á neinum enda var bandið ekki að spila mikið. Hljómsveitin spilaði rokk í anda Deep Purple og Black Sabbath sem voru vinsælar á þessum tíma. Raunar voru Sabbath líka frá Birmingham og Atkins hafði verið dálítið í samskiptum við þá. Í enda ársins 1973 gafst Atkins upp á eymdinni og ætlaði að meika það annarsstaðar. Þeir sem eftir voru í Priest fengu að halda nafninu og þeir réðu í staðinn sem söngvara Rob Halford, en hann var mágur Ian Hill. Halford var á þessum tíma ljósamaður í leikhúsi og söng með hljomsveit sem hét Hirosima. Í byrjun ársins 1974 gerðu þeir plötusamnig við fyrirtækið Gull Records og stuttu eftir það fengu þeir gítar leikaran Glenn Tipton. Eftir að Halford kom til sögunnar fór allt að ganga mun betur og hann kom líka meiri alvöru í málin… Og þér gerðu sína fyrstu plötu Hún hét Rocka Rolla (á henni trommaði Alan Morre) hún kom út árið 1974 og framan á henni var mynd af kóktappa þar sem stóð Rocka Rolla í stað Coca Cola sú plata var svona blús rokk frægustu login af þessari plötu eru Rocka Rolla og Dimends and Rust Platan fékk bæði slaka dóma og daufar viðtökur. Þeir gáfust samt ekki upp og gáfu út aðra plötu árið 1976. Sú hét Sad Wings of Destiny (á henni trommaði John Hinch) hún var þyngri en fyrri plata þæra. Sú plata fékk bæði góða dóma og spilun í útvarpi, bæði í Bandaríkjunum og Bretlandi. Lög af þessar plötu eru Tyrant ,Ripper og Victim of Changes. Í kjölfar Sad Wings fengu þeir gott díl við CBS. Fyrsta platan undir þeim merkjum var Sin After Sin (á henni trommaði Les Binks) hún var svona meiri power metal plata með lögum eins og Sinner og Disstend Aggressor sem kom út 1977. Roger Glover bassaleikari Deep Purple próduseraði hana og hún fékk góða dóma í henni voru Platan fékk þokkalegar viðtökur kaupenda, en þeir náðu samt ekki alveg að brjóta ísinn. Pönkið hafði nú náð fótfestu í Bretlandi og bönd eins og Priest voru álitin gamaldags og úldin. Næsta plata Stained Class (á henni tromaði Simon Phillips en hann for ekki á túrin með þeim) kom 1978. Af henni bar hæst lögin Exciter ,Beyond The Realms Of Death og Staind Class hún var í sama stílnum og Sin After Sin og á þessum arum byrjuðu þeir að koma með leðrið. Hún seldist betur en hinar fyrri og tónlistin hjá þeim var að byrja að mótast og Þeir unnu hægt og sígandi á þó að vantaði töluvert á að þeir næðu alveg að slá í gegn. Á þessum tíma voru hljómleikaferðirnar ennþá bundar við Evrópu og plötusalan mest í Bretlandi Árið 1979 kom plata sem gaf þeim tölæuverðan byr. Hún hét Killing Machine í Evrópu en var gefin út í Bandaríkjunum undir nafninu Hell Bent for Leather (á henni trommaði Les Binks). Á henni var meira keyrt á meiri krafti en áður. Með þessari plötu náðu þeir ennþá meiri hlustun og þeir fengu að túra vítt og breitt og spiluðu m.a. í Bandaríkjunum og Japan. Á þessari plötu tóku þeir aftur cover-lag, í þetta sinn gamla Fleetwood Mac lagið Green Manalishi. Það var upphaflega bara á bandarísku útgáfunni en var síðar bætt inná aðrar útgáfur. Annað lag, Take on the World og önnur lög á þessari plötu eru Hell Bent For Leather náði að komast á topp 20 vinsældalistann í Bretlandi. trommarann á tveimur plötum í röð. Binks þótti gefa hljómsveitinni miklu þéttari grunn er forverar hans. Sama ár þ.e. 1979 var gefin út hljómleikaplatan Unleashed in the East. Sú var tekin upp í Japan fyrr á árinu. Hún fékk fékk fínar viðtökur, enda nutu Priest sín best á hljómleikum. Á þessum túr afhjúpaði Halford í fyrsta sinn fræga mótórhjólið góða sem hann ók jafnan um sviðið undir lok hljómleikanna. Þessi plata varð sú fyrsta frá Priest sem seldist í meira en milljón eintökum. Skömmu eftir útgáfu hennar hætti Les Binks og í stað hans var Dave Holland ráðinn á trommurnar. Hann var með Priest næstu 10 árin. Þeir prestarnir vissu að næsta plata myndi ráða framtíð þeirra og hana þyrfti að vanda. Nú var Heavy Metal að ná sér aftur á strik í Bretlandi eftir pönkárin .
Þeir félagar í Priest vissu að nú stóðu þeir á tímamótum og næsta plata myndi ráða framtíð þeirra. Hún kom út snemma árs 1980 og hét British Steel. Hún var miklu hrárri en fyrri skífur þeirra, en þó voru auðmeltar melódíur inn á milli. Platan stökk strax í 3 sæti á vinsældalistanum í Bretlandi og lögin Breaking the Law , Living After Midnight og Unitedkomust inná topp tíu í Bretlandi. Fjórða lagið, Rapid Fire náði einnig mikilli spilun. Umslag plötunnar vakti líka töluverða athygli en það var mynd af hendi sem hélt á stóru rakvélarblaði. Nafn plötunnar og umslag vísuðu til þeirrar endurreisnar sem heavy metal hafði fengið í Bretlandi og hljómsveitir sem spiluðu þessa gerð tónslitar spruttu upp hver af annarri. Sumar nýjar og aðrar gamlar fengu endurreisn. Platan seldist vel í Evrópu og Japan og Priest spiluðu nú um allan heiminn og víða var uppselt á hljómleika þeirra. Það vantaði þó enn að slá almennilega í gegn í Bandaríkjunum og með næstu plötu Point of Entry sem kom 1981 var gerð skipuleg tilraun til þess. Platan var miklu fínpússaðri en British Steel ,og sumir aðdáendur sveitarinnar voru ekki allskostar ánægðir með þessa breytingu, en platan seldist mjög vel og lögin Heading Out to the Highway, Hot Rockin og Desert Plains fengu öll mikla spilun í útvarpi.. Næsta plata kom út árið 1982 og hét Screaming for Venegance. Með henni tókst loks það sem að hafði verið stefnt og nú tókst Priest að slá i gegn í Bandaríkjunum þessi diskur var svona power metal eins og restin af diskunm þeirra. Lagið You Got Another Thing Coming komst í efsta sæti á vinsældarlista í Bretlandi og víðar. Lagið náði líka inná topp 10 í Bandríkjunum sem þótti býsna gott. Þessi plata seldist álíka mikið og allar plötur þeirra til samans fram að þessu. Nokkur önnur lög af plötunni eins og Hellion/Electric Eye, Screaming for Venegance,Take These Chains Off og Bloodstone náðu nokkrum vinsældum. Þeir ferðuðust um heiminn og spiluðu í tæp tvö ár eftir að Screaming kom út. Og Eftir það tóku þeir sér smá frí áður en upptökur hófust á næstu plötu. Næsta plata kom út árið 1984 og hét Defenders of the Faith. Hún var þyngri en Screaming og lögin sem urðu vinsælust voru Freewheel Burning, Some Heads Are Gonna Roll, The Sentinel , Eat Me Alive og Love Bites. Defenders hélt merki þeirra á lofti, og þeir urðu sterkari live en áður en þeir lentu í máli við barnavernd því í myndbandinu Eat Me Alive er sagt I'm gonna force you at gun pointTo eat me alive textað í myndbandinu . Úta þessu máli ákveðu þeir að gera létari disk sem var ekki jafn þunngur og hann hét Turbo sem kom út snemma árið 1986. Hún seldist að vísu mjög vel, en margir af gömlu áheyrendunum snéru við þeim baki. Turbo varð næstmest selda plata Priest og lögin Parential Guidance , Private Property og Turbo Lover og að nefna önnur lög Reckless og rock you all around the World þessi diskur varð mjög vinsæl hjá konum. Og var mjög vinsæld í Bandaríkjunum. Vinsældirnar í heimalandinu og Evrópu voru að dala og Bandaríkin voru orðin þeirra aðalvígi. Þeir spiluðu á full næstu tvö árin og afrakstur þess varð hljómleikaplatan Priest Live sem kom út haustið 1987. Hún fékk nokkuð góðar viðtökur ásamt myndbandi sem var gefið út í kjölfarið, og þessi diskur sannaði hversu sterkir þeir voru ornir live. Árið eftir, 1988 kom Ram It Down. Og aftur var sándið orðir power metal. Þessi plata fékk miklu betri viðtökur í Evrópu en vestra. Vinsælustu lögin voru Heavy Metal , Ram it Down , Come and Get it síðan útgáfa þeirra af Chuck Berry laginu Johnny B Goode. Í kjölfar hljómleikaferðar sem fylgdi plötunni hætti Dave Holland trommari vegna veikinda og í stað hans var ráðinn Scott Travis úr hljómsveitinni Racer X. Travis var nógu ungur til að geta verið sonur hinna í bandinu og hafði lært að tromma í Berkley listaháskólanum. Hann reyndist frábær trommari og bandið fékk nýtt og öflugt sánd. Árið 1990 kom síðan út Painkiller sem var hrárri og þyngri en flest sem þeir höfðu áður gefið út. Einn aðalgrunnurinn í sándinu var öflugur trommuleikur Travis og snildar gítar sándið hjá þeim Glenn Tipton og K.K. Downing . Nú voru Priest þeir líka komnir í samkeppni við margar af þeim hljómsveitum sem þeir höfðu sjálfir mótað eins og Pantera, Megadeth og fleiri. Painkiller vakti endurnýjaðan áhuga á þeim og hún seldist vel frægustu login á diskinum eru Painkiller,Metal Meltdown og Touch of Evil en allur diskurinn er frægur. Gömlu mennirnir virust ekki dauðir úr öllum æðum, en árið eftir kom upp mál sem átti eftir að setja mark sitt á framtíð hljómsveitarinnar. Foreldrar tveggja unglinga sem höfðu framið sjálfsmorð drógu hljómsveitina fyrir rétt vegna þess að synir þeirra höfðu verið að hlusta á lag sveitarinnar Better Than You Better Than Me í marga sólarhringa áður en þeir skutu sig. Innihaldi textans var kennt um hvernig fór og eftir löng og ströng málaferli féll málið niður, en það kostaði hljómsveitina samt nokkur hundruð milljónir í málskostnað. Rob Halford hætti óvænt árið 1993 eftir um 20 ára feril með Priest. Hann fór og stofnaði sína eigin hljómsveit sem hét Fight og tók Scott Travis með sér. Fight gaf út tvær plötur áður en hún leystist upp og Halford var stuttan tíma með Black Sabbath og tók upp tvö lög með Pantera áður en hann stofnaði aðra hljómsveit sem heitir bara Halford og er búin að gefa út tvær plötur sem hafa fengið mjög góða dóma. Eftir brotthvarf Halford leit fremur illa út með að Priest myndu nokkru sinni gefa út aðra plötu. Tipton gaf út sólóplötu og það gerðist fátt næstu árin annað en að 1993 var gefinn út tvöfaldur diskur með úrvali laga sem höfðu verið remixuð. Þesi diskur hét Metal Works 73-93 og 1996 kom út Living After Midnight - The Best of JP. Þeir félagar KK Downing, Glenn Tipton og Ian Hill leituðu í rólegheitum að nýjum söngvara og þeir fullyrða að það hafi aldrei staðið til að leggja bandið niður. Þeir reyndu ýmsa, en þegar þeir sáu vídeóupptöku með 28 ára gömlum bandaríkjamanni Tim Owens, þá töldu þeir sig hafa fundið þann rétta. Þeir sendu strax eftir honum og báðu hann að syngja með upptöku af Victim of Changes. Han var ekki búinn að syngja nema nokkrar línur þegar Tipton stöðvaði tónlistina og sagði “þú ert ráðinn”. Owens tók síðan upp nafnið Ripper Owens eða bara Ripper eftir lagi Priest sem kom út 1976. Scott Travis vildi ganga til liðs við þá aftur og gömlu mennirnir voru nú með söngvara og trommara sem gátu verið synir þeirra hvað aldursmun varðaði, en þeir höfðu fáu gleymt og fyrsta platan þar sem Ripper söng kom út 1997 og hét Jugulator. Hún var þyngsta plata þeirra til þessa og nýr rífandi kraftur kominn í bandið. Lagið Bullet Train var tilnefnt til Grammyverðlauna og Blood Stained náði nokkrum vinsældum. Jugulator seldist ágætlega og þeir fóru í hljómleikaferðalag í kjölfarið sem var hljóðritað og kom út á tvöföldum diski sem hét Live Meltdown og kom út 1998. Þar kveður við nýjan og kraftmeiri tón. Rykið var dustað af eldri lögum þeirra og mikið spilað af British Steel. Þessi liveplata þótti hafa flest það sem Priest Live hafði ekki.Árið 2001 kom platan Demolition út (um lok ársin fóru þeir að leita að gömlum lögum sem þeir höfðu aldrei gefið út áður og í byrjun ársins 2002 gáfu út The Rematers betri útgáfu af fyri diskum + auka lögum). Hún var í svipuðum stíl og Jugulator og seldist betur. Sándið er hrátt og rífandi söngur Ripper nýtur sín vel. Lögin Hell is Home, Machine Man og Metal Messiah hafa fengið mesta athygli. Í kjölfar Demolition kom annar live diskur Live in London árið 2002 en í eitt ár gerðist ekki neitt hjá bandinu Ripper hæti hjá þeim og stofnaði hljómsveitina Iched Earth.En um mit árið 2003 kom Halford aftur og í tilefni þess gáfu þeir út DvD Eletric Eye af tónleikum árið 1986. Í byrjun ársin túruðu þeir heimin aftur en í lok þess árs gáfu þeir the best of svona Box set með fjörum diskum sem hétir Metolgy .í byrjun árs 2005 gáfu þeir nýjan disk sem hétir Angel of Retribusion sem minir svolítið á Painkiller en frægustu login af þessum diski eru Judas Rising, Deal With the Devil og Hellrider og nú gefa þeir ekki neitt eftir og eru þynngri en nokkru sinni áður.

Þeir eru þegtastir fyrir
1. Rob Halford
2. snildar gítar leik frá Glenn og K.K. þeir eru snillingar frá guði
3. svið framkomu
4. leðrið

aðrir hljómsveitar meðlimir voru
Alan Moore trommur
John Hinch trommur
Les Binks trommur
Simon Phillips tromur
Dave Holland trommur
Tim “Ripper” Owesns söngur

ég mæli eindregið með því að fólk byrji að hlusta á þessa snildar hljómsveit
og douwnloudi lögum eins og Painkiller og Metal Meltdown

ég skrifaæi þessa gein í flýti og mun skrifa aðra seinna betri grein