Justin sem Rotten hræðilegt eða sniðugt Nýlega sá ég í fréttablaðinu að ætti að gera mynd eftir sjálfsævisögu Johnny Rottens en hún heitir Rotten No Irish No Blacks No Dogs, þar sem ég er mikill aðdáandi hans varð ég glaður,en svo sá að Justin Timberlake ætti að leika hann og varð mjög hissa.Og einnig stóð að Rotten væri mjög ánægður með það og þá hélt ég að þetta ætti að vera joke.Samt væri gaman að sjá hvernig Justin tækist að leika erki-pönkaran sjálfan en þeir eru ólíkari en ljós og myrkur Johnny er ljótur og með ljótar tennur en Justin er eins og flestar kvenkyns gelgjur segja ´´Agavöð(gvöð)hann er sætur´´ og vonandi nær Justin hreimnum.Mig grunar að þegar Johnny sagði að hann vildi eimmitt Justin í hlutverkið var hann að grínast eða þá að hann vildi ekki láta gera mynd og vildi skemma hana.Ég er búinn að reyna að finna bókina á bókasöfnum og í bókabúðum en án árángurs ef einhver veit hvar hún fæst vildi hann vera svo væn að skrifa það í svona P.S í svari sínu.Mig langar líka að gera eins og gaurinn sem vildi Paul Mcartney til Íslands og gera undirskrifta lista, en ég hef enginnsambönd svo ég verð að finna heimilisfangið hans og senda listann þangað með smá mútum(íslensku brennivíni) og það væri mun auðveldara að fá hann en Paul.Ég er semsagt á móti því að Justin leiki hann og ég hvet alla Rotten aðdáendur til þess að vera það líka.



P.S ef þú veist hvar á netinu ég get fundið heimilsfang hans segðu það í P.S2 segðu líka ef þú hwfur sambönd eða veist heimilisfangið

P.S2 ég mun brátt gera síðu þar sem þið getið skrifað undir , eða þegar ég finn heimilisfangið