Ég er ekki gáfaður
Ég er ekki fallegur
Ég er ekki ríkur
Ég hef enga hæfileika

Hvað á þannig manneskja að gera? Ég hef undanfarna æfi hlustað á tónlist til að létta mér lífið og þegar ég var lítill fór mér að líka illa við það sem var vinsælt vegna þess að það var ekki raunverulegt. Það er ekki hægt að hugga sig við það sem er ekki raunverulegt, það er ekki engin ný hugsun í því sem er ekki raunverulegt og stundum líður mér illa þegar ég heyri eitthvað sem er ekki raunverulegt.
Þegar ég heyri eitthvað sem er gott get ég oft verið viss um að vera sá eini sem hlustar á það því næstum allir vinir mínir hlusta á manstream popp. Ég held að þeir sem hlusta á popp séu ekkert endilega heimskir, en þeir hafa bara ekki áhuga á tónlistinn sjálfri heldur öllu umstanginu í kringum hljómsveitina. Eitt af því sem mér er virkilega illa við er þegar poppari reynir að segja mér að popp sé góð tónlist og betri en eitthvað sem ég hlusta á.
Að sjálfsögðu er til gott popp, en líkurnar á því að allt það góða sem er að gerast lendi allt á vinsældarlista eru engar.
Þeimun meiri sem árhyf eins tónlistarmanns eru á annnan þeimun minna er hinn síðari að gera eigið efni. Það verða fáir eins og idolin þeirra, því eingir tveir eru eins.
Nú er ég farinn að bulla soldið. Það er hættulegt að fullyrða og ég vil gera sem minnst af því. Það er erfitt að gera fullyrðingu sem enginn er á móti, þess vegna finst mér gott að segja það sem mér finst, því það getur enginn mómælt því. En hver hefur áhuga á því sem mér finst? Það hafa allir álit og hverjum er ekki sama um mitt þegar hann getur fegnið annarra. Það er einmitt það sem ég vil fá útúr tónlist. Ég vil vita hvað listamaðurinn er að hugsa. Það finst mér raunverulegt, ef það er hægt að rökstðja og ekki eitthvað sem hann hefur heyrt frá öðrum. Þess vegna er mér illa við popp því það er haft eins og markhópurinn vill hafa það.

Þegar mér líðiur illa finst mér fátt betra en að hlusta á alvöru lag eftir einhvern annan sem líður illa, sem líður eins. Það er erfitt að finna þannig lag, en ég veit allavega hvar ég á ekki að leita að þannig lagi, í topp 20 lista skífunnar.

Nú hef ég ekki hugmynd um það hvort aðrir hafi sömu hugmynd og ég um þetta, en ég vona að þetta sé ekki einhver vitleysa.

til að fá einhver svör ætla ég að leggjast svo lágt að spurja hvað ykkur finst raunverulegt og hvað ekki. Ég vona að ég fái einhver athyglisverð svör.

Citizen
Allar fullyrðingar eru rangar