Trommarinn ungi í The Offspring er hættur í bandinu samkvæmt heimasíðu strákanna. Hann segist ætla að einbeita sér að nýju verkefni sem er að stofna nýtt band. Nýja bandið heitir Steady Ground og er heimsasíðan þar www.steadyground.com fyrir þá sem vilja kíkja.

Haldið er að Ron hafi hætt vegna þess að Offspring er komið út í mun léttara og meira Commercial en áður, en hann vill halda áfram að rokka og finna sig í nýju bandi.

Ekki hefur verið ákveðið opinberlega hver nýji trommarinn verður, en samt er mjög líklegt að það verði Josh Freese sem hefur verið að tromma á nýja disknum hjá strákunum sem kemur út í sumar.

Josh Freese hefur verið að tromma með hljómsveitum eins og The perfect circle og The Vandals. Josh er ungur og efnilegur og er kemur mjög sterklega inn sem nýji trommarinn.

Smashie