Fyrsta umferð af sex í Íslandsmótinu og jafnframt fyrsta umferð af átta í Formula Off Road Open 2002. Keppt verður í gryfjum í Bolöldum rétt ofan við Sandskeið og hefst keppni klukkan 13.00. Gísli Gunnar Jónsson hefur titilað verja sem og Ragnar Róbertsson sem sigraði í Götuflokki á síðasliðnu ári. Gísli varð í fyrra bæði Íslandsmeistari og Heimsbikarmeistari en að honum sótt í lokin Haraldur Pétursson. Haraldur hefur gert gagngerar breytingar á Musso-bíl sínum og má ætla að róðurinn verði Gísla þyngri í sumar enn fyrr. Einnig má gera ráð fyrir að Sigurður Þór Jónsson, Björn Ingi Jóhannsson, Gunnar Ásgeirsson og Guðmundur Pálsson blandi sér í toppslaginn í þessari fyrstu umferð