Góðan í gær fór Sveinbjörn Valur 53 í það að athuga hvað hann gæti fleitt langt á sleðanum sínum á lagarfljótinu, Skidoo rev 800. Lagði hann af stað frá lagarfljótsbrúnni í flotgalla með gpstækið teipað á stýrið á sleðanum. Sigldi svo sem lei lá inn með ströndinni norðanmegin, inn í fljótsdal snéri við tók sveig inn í Atlavík og til baka eftir miðju fljóti og komst langleiðina til baka, en þurfti að taka land rétt fyrir innan Egilsstaði vegna bensínleisis. Já þá voru allir 40 lítrarnir búnir úr tanknum. þegar hann tók land hafði hann samkvæmt gpstækinu siglt 50.6 kílómetra. Já geri aðrir betur. Kláraði hann svo ferðina að brúnni eftir að hafa fengið bensín sent með jet ski til sín. Hafði hann þá siglt í heildina 60.6 kílómetra. Svo er bara spurningin um það hvað íslandsmetið sé í þessari sérstöku siglingagrein. Vita menn allavegana ekki til þess að farið hafi verið lengra en 18 kílómetra á bergvatni.


Þessar upplýsingar fengust hjá Tarfnum(www.123.is/tarfurinn)og þakka ég honum fyrir þær.
Mongoose Fireball 2008