Laugardaginn 4. var haldin enduro keppni við motel venus í borgarfirði eins og flestir vita. Ég smellti mér á þessa keppni og fannst hún heppnast bara mjög vel. Brautin var erfið og keppendur þreyttust mjög mikið. Mínir menn í TEAM MOTUL stóðu sig vel en það er hrein unun að sjá Einar Sigurðsson keyra mótorhjól hann keyrir svo hrikalega hratt og vel að hann hreinlega svífur yfir allar ójöfnur. Hann var líka lang lang lang fyrstur í báðum umferðunum sem voru 90 mín. hvert og tók alveg gríðarlega á. En semsagt skemmtileg keppni og vel heppnuð.

Fór einhver hér á huga á þessa keppni?