Ég er að spá, nú er ég að hugsa um að fara að kaupa mér galla, annaðhvort stakar buxur og jakka eða bara svona galla. Svo vantar mig hjálm líka.
Er einhver verslun hérna sem er með betra verð en önnur?

Fór í nítró í dag og mér fannst verðin á öllu bara vera alveg útúr kortinu. Svo fann ég engann flottan hjálm. Langar bara í einhvern svona týpískan svartann flottann. Mér fannst eiginlega bara þessir sem voru í nítró hálf ljótir. Sá amk engann flottann.

Hvert á maður að fara þegar maður er að skoða sig um í þessu?

Verð eiginlega að vera búinn að eignast hjálminn amk fyrir þriðjudaginn næsta þannig hvar ætti maður að skoða?
Einhverjar útsölur eða lagersala einhverstaðar?
Cinemeccanica