Halló halló,

ég er búinn að vera að leita á vefnum að service bókum fyrir yammann minn. Ég leitaði t.d. á amazon.com en fann lítið sem ekkert. Ég er með Dragstar 2001 1100 (ameríkutýpan heitir V star) og ef einhver getur bent mér á einhvern stað á netinu þar sem ég get fundið einhverjar viðgerðabækur myndi það bjarga jólunum hjá mér :)

Ég er líka búinn að vera að gramsa mikið á netinu í leit að síðum um þetta efni, en einu almennilegu síðurnar sem ég hef fundið eru á þýsku, og ég er ekki sleipari í henni en svo að ég get rétt boðið gott kvöld…

Vona að einhver þarna úti sé búinn að leita yfir sig að bókunum og geti hjálpað mér með þetta…

Anyways - Gleðileg hjólaJól - og það stefnir allt í að það verði hægt að fara í hópreið þann 24 nk. :Þ

Jólakveðjur,
Morph