Ég og Heiðar (heddi977 hér á huga) höfum opnað nýja síðu http://www.motox.is
Síðan er ennþá á byrjunarstigi varðandi útlit og aðra fídusa en hún er öll að koma til.

Það sem við munum helst setja á síðuna er:

-Ferskar fréttir frá mótorhjólaheiminum bæði utan sem innanlands.
-Lýsa ástandi brauta með orðum og myndum eins oft og auðið er.
-Setja inn myndir í myndaalbúm af æfingum og keppnum.

Einnig munum við koma til með að auglýsa fyrirtæki og aðila sem styrkja okkur.