Ég er með smá spurningu !
Þannig er mál með vexti, ég á krossara og eftir smá hamagang á honum um helgina þá lagðist annar framdemparinn saman. Ég vildi athuga hvort þið vissuð hvort að það sé mikið mál að rífa demparan í sundur og gera sjálfur við hann , ég hef aðgang að verkstæði. Er það eitthvað sem ég ætti að passa mig á ?

Ég las greinina sem Gulaq sendi inn fyrir nokkru og veit nokkurn veginn hvernig dempari virkar.

Hvaða verkstæði sjá annars um svona viðgerðir ?