Ég var einmitt að hugsa um þetta í dag. Þessar ljósmyndasamkeppnir eru mjög skemmtilegar, hægt að sjá hvernig þetta virkar á hugi.is/jadarsport … þar sem þeir hafa verið að halda þetta öðru hverju.
Virkar þannig að fólk tekur sínar eigin flottar myndir og sendir þær hingað, síðan eru þær birtar allar í einu ásamt könnun um flottustu myndina og svo fær sú mynd sem fékk flest atkvæði að standa hérna á forsíðunni á /motorhjol.
Koma með skoðanir á þessu, hvort fólk sé til í eitthvað svona.
Líka jafnvel hægt að hafa hjólamann vikunnar eins og á /hljodfaeri .. þar sem það er stór dálkur með mynd af hljóðfæra gaur og svo viðtal við hann.