Þegar stórt er spurt…
Þú ert að spyrja hvort vit sé í að kaupa 10 ára gamalt hjól.
Svarið fer; eins og gefur að skilja, eftir ástandi hjólsins.
Dæmi; fyrir um 15 árum keypti ég gamlan 175CC Kawa í Hafnarfirði; sem var logið upp á mig. Þannig var afturfjöðrunin nánast föst, og Cylinderinn ónýtur þar sem kefli úr stimpilboltalegu hafði losnað og farið upp á milli stimpils og cylinders.
Allavega; ekki kaupa hjólið nema allt virðist virka eðlilega, það á ekki að leka olíu, og á að fara í gang m. startsveif. Þá á fjöðrun að virka mjúk og hjólið verður að geta gengið hægagang.
.. þá ætti að vera í lagi að kaupa dæmið á svona 150 þúsund hámark.
Hafðu í huga við viðskiptin að þú hefur valdið; þú hefur peningana (ekki 10 ára gamalt hjól).
Gott væri ef þú tækir einhvern með þér sem er vanur að umgangast hjól.
Thumpstar 110 CC árg. 2006, Yamaha WR 450 árg. 2005. Kitchen Aid hrærivél árg. 2005.