Er að fara kaupa mitt fyrsta mótorhjól. Ætla að kaupa mér endurohjól en málið er að ég er algjör byrjandi. Hef mestan áhuga að fá mér hjól sem að ég get farið á upp á hálendið og ferðast, en líka í smá torfærur. Hef mikinn áhuga að fá mér Honda XR… en þau virðast vera vandfundin og svo getur vel verið að svoleiðis hjól myndi ekki henta mér.
Nú væri gaman að heyra frá ykkur reynsluboltunum í þessu sporti.