Sælir þið ungu knáu riddarar sem þeysist um á mótorfákum!

Ég hef verið að velta fyrir mér hvort það séu engir hér sem eru á götuhjólum ? Þetta spjall hérna snýst bara um drullumallara, sem ég er alls ekkert á móti, ekki misskilja mig, en það mætti hafa þetta fjölbreytilegra að mínu mati.

Eru menn ekkert spenntir fyrir Aprilia, Ducati, Buell svo eitthvað sé nefnt… Ég hef rekist á nokkur á leið minni hérna um stræti borgarinnar og afleiðing þess var svo mikill fiðringur að mér langaði að henda bílnum og fá mér hjól!

Hvað finnst ykkur? Eru virkilega enginn hérna með smekk fyrir fleiru en motocross ???

Kv. Viddi