Sæl veriði.

Mig langar til þess að athuga hvernig markaðurinn þarna úti sé til að leigja mótorhjól.

Það er nú ekki mikið eftir af sumrinu og ég hef ekki hug á að kaupa mér hjól alveg strax en mig langar svakalega að fá að leiga eitt hjól í ca. 2 mánuði og þá myndi ég auðvitað taka á mig þann hluta tryggingana sem eiga við og þess háttar.

Það væri mjög gott ef þið vissuð um einhvern sem er ekki að nota hjólið sitt en langar samt ekki að selja, og væri til í að fá smá pening, að þið gætuð látið mig vita.

Ég geri mér auðvitað alveg grein fyrir því að það vill enginn lána hjólið sitt, en mig langar samt til að reyna á þetta.

Kærar þakkir,
kv. Ásta