Ég fann köllunina mín, ég fór um daginn og prófaði krossara. Eina sem ég get sagt er að ég hef fundið köllunina. Hingað til hef ég verið að stunda hin ýmsu jaðarsport, en þetta slær öllu við. Ég held að ég geti með sanni sagt að ég hafi aldrei prófað neitt skemmtilegra. Mér fannst einsog þetta hafi verið það sem ég var að bíða eftir. Ég keyrði heim og eina sem ég hugsaði um var hvernig get ég eignast krossara. Og allt sem því fylgir, ég sé fyrir mér að ég þyrfti að skipta um bíl, kaupa mér brynju, hjálm, skó og allt sem þessu fylgir. Sían þegar ég var aðeins farinn að róa mig niður áttaði ég mig á því að ég veit ekkert um þetta. Hvernig Krossara ég ætti að fá mér, hvað kostar þetta allt? Ótal spurningar vakna. Markmiðið er að eignast krossara og stunda þetta sport af fullum krafti. Ef einhver vill vera svo góður að gefa mér einhverjar ráðleggingar væri það ótúlega vel þegið.
Með öfund við þá sem hafa löngu uppgvötvað þetta sport
TDTH.

ég skrifaði þennan korki á ágúst og núna er komið plan..ÉG KAUPI MÉR KROSSARA Í HAUST!!!! VEEEEIII

en mig vantar enþá góð ráð:D ef einhver nennir