Fredrik „Frog“ slasaðist á æfingu áðan, þar sem Fredrikarnir tveir og Valdi voru að æfa, ásamt Gylfa í Team Suzuki.

Ekki er komið á hreint hvort meiðsli hans séu alvarleg, en hann meiddist á úlnlið. Ljóst er að hann verður því ekki með á morgun þar sem hann þarf að ná bata fyrir heimsmeistaramótið næstu helgi.

Gylfi ætlar að koma í staðinn fyrir Fredrik og reyna að fylgja hans kúnstum eftir. Vonandi tekst stákunum vel upp og ná að halda í rassgatið á hinum Fredrik, en hann er einnig búinn að vinna sér inn þáttöku rétt á heimsmeistaramótinu í Freestyle næstu helgi…..
Sara#64