Ekki vera að pæla í crossara ekkert nema vandræði og svoleiðis löggan alltaf að bögga mann,svo sagði vinur minn að crossari væri alltaf bilaður,fáðu þér heldur Sukku TS 50 þú kemst allt á henni og bilar aldrei.
uhhh, nei…. Suzui TS bilar helling, álíka mikið og venjulegur krossari. Löggan hefur ekkert buggað mig og ég er bæði á óskráðri skellitík og svo óskráðum krossara. Hvorugt hjólana minna bilar nokkur að ráði (að vísur eru þau ný eða 2002 model crossari og 2000 model skellinaðra)
Já já auðvitað geta öll hjól bilað hvort sem það er Sukka Honda eða hvað annað. STAÐREYNDIN er samt óhrekjanleg.Suzuki hefur talsverða yfirburði yfir önnur hjól sem eru á götunum bæði hvað varðar bilanatíðni,styrk og áreyðanleika. Ég er búinn að eiga bæði Hondu og Sukku og ég jafna þeim ekki saman.
Kannski á götuni, lítil reynsla þar en hvað off road varðar verð ég að hald þeim á svipaðri línu. Líka ef þú lest revewe um hjólin í virtum Motocross blöðum Rm vs CR vs YZ vs SX o.fl er 250cc súkkan ekkert að brillera en 125cc hjólið stendur sig mjög vel. Hjá Hondu er þetta öfugt.
Þar skiptir ökumaðurinn ekki svo litlu,Í öllum keppnum spilar ökumaðurinn aðalhlutverkið. Til dæmis getur strákur á 125 unnið 250 ökumann með tækni og öðru sem skiptir máli og skiptir þá engu hvort hjólið er í raun og veru betra.Þetta eru allt ný hjól sem er verið að keppa á og segir ekki til um hvort þetta eða hitt sé betra, Viðmiðun sem er marktæk fæst út úr allmennri notkun og við verðum at taka mið af því.
Kannski,ég er alltaf á nýjum eða nýlegum hjólum. Fyrir utan fyrstu skellurnar mínar. Núna er ég á 2000 skellinöðru og 2002 Krossara (3 mánaðar gamall) Þess fyrir utan er vinur minn 125cc TM og hann vann eina kepni sem ég sá úr íslandsmeisara mótinu í MX B flokki og þar var hann að keppa við 520cc hjól. En ég er samt ekki sammála þér með að Suzuki sé best. Þó svo er ég ekki að segja að Honda sé eithvað mikið betri. TM er einfaldlega best í MX. Svo eru þeir ekki allt of fróðir um hjólin þarna í Suzuki umboðinu. Hvað umboð varðar er KTM eða TM best held ég
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana.
Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..