MX höll í Hafnafjörð Af hverju er ekki hægt að koma upp einni svona höll fyrir okkur hjóla fólkið, td við kvartmílu braut Í hafnarfirði. Ég er viss um að aðsóknin yrði góð. Það eina sem hafnafjarðarbær þyrfti að gera er að úthluta AÍH varanlega lóð (nógu er nú hraunið stórt), og hvað eru margar fótbolta og handbolta hallir á höfuðborgarsvæðinu? Húsið á myndinni er fyrir utan Stockholm (Svíþjóð) og það er 40*80 metrar að flatarmáli sem er næstum helmingi minna en einn skitin fótboltavöllur. Fótboltavöllur er (65*100) held ég, er samt ekki sérfræðingur í fótbolta.
Fyrsta skrefið er að fá varanlega lóð til afnota, sem verður ekki tekin aftur þegar yfirvöldum hentar. Þá væri hægt að vinna í að fá fjármagn í eitthvað almennilegt. Hún er orðin þreytt gamla þulan um að það séu ekki nógu margir sem stunda íþróttina. Ég held við séum orðin nógu andskoti mörg miðað við það að við höfum sama og enga aðstöðu. Ég er hræddur um að fáir mundu stunda fótbolta ef engir væru vellirnir, og jafnvel þó það væri einn fótboltavöllur á kafi í snjó upp á hellis-heiði!