Jæja góðir landsmenn.

Þá er komið að því að sýna hversu megnug okkar litla
þjóð getur verið þegar hún tekur sig til.
Nú er svo komið fyrir að við erum farinn að borga meirihlutann af okkar
launum í ELDSNEYTIS kostnað sem að er
náttúrulega alveg óviðunandi ástand
EN nú getum við sýnt hvað í okkur býr með því að hreinlega KNÝJA fram
lækkun, við þurfum ekki ég endurtek EKKI
að hætta að kaupa bensín og/eða olíu heldur hreinlega ÚTILOKA bara tvö af
þessum þremur olíufélögum sem að við
neyðumst til að versla af hér í landi.
Þannig að frá og með þjóðhátíðardegi okkar þann 17 júni þá hættum við að
versla við þessi 2 stóru olíufélög
sem að eru OLÍUFÉLAGIÐ/ESSO og SKELJUNGUR/SHELL.Þetta kemur til með að
neyða þessi fyrirtæki til að lækka
bensín og olíuverðið því að við vitum jú að ekkert fyrirtæki getur gengið án
innkomu,og við hættum þessum aðgerðum ekki fyrr en
að þeir hafa lækkað bensínlítran af 95 oktana bensíni NIÐUR fyrir 95 krónur
og dísel lítrann niður fyrir 45 krónur
Kæra þjóð við verðum að gera eitthvað í málunum og við getum það vel ef við
sýnum samstöðu og þú sem að ert að lesa
þetta bréf núna, áframsentu þetta til allra sem þú þekkir eða prentaðu
þetta út og dreifðu þessu á þínum vinnustað eða
gerðu bara allt sem í þínu valdi stendur til að sem flestir taki þátt í
þessum aðgerðum.
Munið bara að þegar þið keyrið framhjá næstu ESSO eða SHELL stöð að það er
OLÍS eða ÓDÝRT BENSÍN einhversstaðar nálægt.
Ekki hugsa þannig er þú lest þetta bréf að þetta sé ekki glæta og þetta
muni aldrei ganga því að þetta gengur upp ef að þú
kæri íslendingur vilt það nógu mikið.
Það skal tekið fram að þetta bréf kemur ekki frá OLÍS mönnum því að þeir
neyðast líka til að lækka þegar þar að kemur,þeir urðu einfaldlega fyrir
valinu með því að kasta upp íslensku KRÓNUNNI.
Með von um góða samstöðu.

ÍSLENSKUR RÍKISBORGARI